Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga vill að forráðamenn bæjarfélaga um allt land bregðist við áskorun Barnaheilla um gjaldfrjálsan grunnskóla.
Hann segir mikilvægt að skoða hvernig sveitarfélög í landinu geta betur komið til móts við fjölskyldufólk í þessum efnum, en samkvæmt landslögum er skólum landsins á skyldustigi ekki heimilt að rukka foreldra fyrir námsgögn. Halldór segir í ljósi þessa að skoða verði aðkomu ríkisins að málinu.
Samtökin Heimili og skóli tóku fyrr í vikunni undir áskorun Banrnaheilla þess efnis að farið sé að landslögum hvað þetta varðar og sömuleiðis tekið tillit til barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um gjaldfrjálsan grunnskóla í aðildarríkjum sínum.
Kostnaður heimila vegna grunnskólagöngu barna getur verið mjög misjafn, allt frá 2,500 krónum upp í 7,500 krónur fyrir allra nauðsynlegustu gögn, en dæmi eru þó um mun hærri upphæðir sem hlaupa á tveimur til þremur tugum þúsunda þegar öll ritföng, geymsluhefti, möppur og stílabækur eru tekin með í reikninginn.