Skoða hækkun á persónuafslætti

Stjórnvöld skoða nú með hvaða hætti hækkun persónuafsláttar geti liðkað til fyrir kjaraviðræðum sem eru í uppnámi milli fjölmargra stéttarfélaga og viðsemjenda þeirra. Ríkisstjórnin hefur mjög verið gagnrýnd á síðustu vikum fyrir að sýna ekki á nokkur spil við samningaborðið; hnúturinn á vinnumarkaði hafi fyrir vikið herst til muna.


Þá eru einnig sagðar vera hugmyndir uppi um að stórefla starfsmenntun í þeim atvinnugreinum sem hennar nýtur einna síst við, svo sem í ferðaþjónustu og verslun en báðar greinarnar eru í örum vexti sakir aukins straums ferðafólks til Íslands.


Morgunblaðið kveðst hafa heimildir fyrir því í blaði dagsins að til skoðunar sé að breyta skattkerfinu í þá veru að persónuafsláttirinn færi stiglækkandi eftir því sem ofar drægi í tegkjustiganum. Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins staðfestir það eitt við blaðið að menn hafi velt vöngum yfir því hvort og þá með hvaða hætti breytingar á persónuafslætti gætu komið að gagni í viðræðunum en það sé allt mjög óformað.