Kyrrsetning Boeing MAX 737 flugvéla Icelandair hefur reynst flugfélaginu afar kostnaðarsöm. Tap vegna kyrrsetningarinanr nemum um 19 milljörðum króna og mun sú upphæð hækka eftir að í ljós kom að þær færu ekki í loftið í ár. Forstjóri Icelandari segir að nú sé í athugun að flytja vélarnar úr landi.
„Þetta er í skoðun og er búið að vera á teikniborðinu í talsverðan tíma. Það hefur ekkert verið að gerast í ferlinu í heild sinni sem hefur einhver áhrif á þetta,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í samtali við Fréttablaðið í dag.
Hann segir að Ísland sé ekki besti staðurinn til að geyma flugvélar yfir haust og vetur en að það liggi ekki fyrir hvert þær yrðu fluttar. Þó er ljóst að þær yrðu fluttar á stað þar sem veðurfarslegar aðstæður eru betri en á Íslandi.
Icelandair þarf að fá samþykki flugmálayfirvalda til að ferja vélarnar úr landi og segir Bogi að ákvörðun um það muni væntanlega liggja fyrir fljótlega.
Á dögunum var greint frá því að Boeing MAX 737 vélar Icelandair yrðu ekki teknar í gagnið á þessu ári. Þær voru sem kunnugt er kyrrsettar í mars á þessu ári eftir að tvær slíkar vélar hröpuðu með stuttu millibili, í október á síðasta ári og í mars á þessu ári.
Áður höfðu fyrri yfirlýsingar Boga og flugfélagsins miðað að því að vélarnar yrðu teknar í gagnið í október á þessu ári.