Bæði skotið og skoðað

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra tók á móti sjö þúsund undirskriftum til stuðnings ósk um að Faxaflóinn verði griðasvæði hvala. Þorgerður Katrín sagði við þetta tilefni að ljóst megi vera að ekki verði búið við núverandi stefnu um hvalveiðar um aldur og ævi í efnahagslögsögu Íslands.

Hvalir á Faxaflóa eru nú skotnir og skoðaðir. Þorgerður Katrín segir títt kallað eftir að heimildir til hvalveiða verði endurskoðaðar. Hér má vísa til þess að hvalveiðar Íslendinga eru iðulega til umræðu erlendis. Íslendingar hófu aftur hvalveiðar í atvinnuskyni árið 2006.

Þegar Ísland gekk aftur í Alþjóðahvalveiðiráðið árið 2002 setti íslenska ríkið fyrirvara gagnvart banni við veiðum í atvinnuskyni og það hefur því enginn áhrif á hvalveiðar Íslendinga. Þorgerður Katrín segir að hagsmunaaðilar þurfi að eiga samtal um þessi mál en nokkuð ljóst sé til lengri tíma að Íslendingar eru ekki að fara að búa við núverandi stefnu í hvalveiðum um aldur og ævi.  

Heimildir HRBR staðhæfa að hvalveiðar Íslendinga heyri líkast til sögunni til innan ekki langs tíma því pólitískar afleiðingar þeirra séu svo neikvæðar. Ákveðin verndarsvæði til hvalaskoðunar eru fyrsta skrefið enda má stækka þessi svæði markvisst og þannig bægja frá hvalföngurum svo þessar veiðar verða ekki lengur arðbærar. Hvalaskoðun mun þannig bera sigurorð af hvalveiðum segja heimildir HRBR.  

rtá

Nánar www.stjornarrad.is