Mikill skjálfti er innan VR út af því klúðri sem varð við framkvæmd kosninga í trúnaðarmannaráði um stjórnarsæti hjá lífeyrissjóðnum.
Búið er að flýta stjórnarfundi til kl 17 á morgun sem átti að vera á mánudag vegna þess hve vandræðalegt málið er.
Lögmaður Ástu Rutar Jónasdóttur hefur bent á að kosningin sé ólögmæt og krafist ógildingar hennar. Kosningaréttur var tekinn af frambjóðendum án heimildar í lögum eða reglum, ógilda þurfti kjörseðla, engin kjörstjórn var skipuð og frambjóðendum bauðst ekki að láta fulltrúa sína fylgjast með framkvæmd kosningar og talningu.
Málið er allt hið versta klúður hjá stjórn VR eins og flestir fjölmiðlar hafa fjallað um.
Ekki verður séð hvernig VR kemst frá þessum vanda en lögmaður félagsins Guðmundur B. Ólafsson er boðaður á neyðarfundinn. Væntanlega er honum ætlað að finna lausn til að skera stjórn VR úr snörunni.
Sjá meðf. frétt af Mbl. is um neyðarfund stjórnar VR.