Orka náttúrunnar vekur athygli á því að vegna tilraunaniðurdælingar við Nesjavallavirkjun þá telja vísindamenn að tímabundið séu auknar líkur á skjálftavirkni við Kýrdal.
Að því er fram kemur í tilkynningu Almannavarna ríkisins í dag geta slíkir skjálftar náð þeirri stærð að þeir finnist í byggð. Áhrifin eru staðbundin og verkinu stýrt þannig að hætta á að skjálftar finnist í byggð er lágmörkuð.
Nánari upplýsingar má finna á heimasóðu Orku náttúrunnar, en þar segir að niðurdæling vinnsluvatns frá jarðgufuvirkjunum hafi tvíþættan tilgang: \"Annars vegar dregur hún úr umhverfisáhrifum á yfirborði með því að vinnsluvatnið er ekki losað þar. Í nýrri jarðgufuvirkjunum er almennt gerð sú krafa að vinnsluvatninu sé skilað niður í jarðhitageyminn en losunin er með ýmsu móti í eldri virkjunum. Bláa lónið er afrakstur einnar aðferðar við losun en á Nesjavöllum, þar sem virkjanarekstur hófst árið 1990, hefur vatnið ýmist verið losað í grunnar borholur við virkjunina eða á yfirborði. Áhrifa þessarar losunar gætir í hækkuðu hitastigi Þingvallavatns í Þorsteinsvík, norður af virkjuninni. Með aðgerðunum nú á að draga úr eða eyða þeim áhrifum.
Hins vegar eflir niðurdælingin sjálfbærni nýtingar jarðhitaauðlindarinnar með því að vinnsluvatni er skilað aftur niður í jarðlög þar sem það hitnar að nýju. Þetta spornar gegn lækkun á vatnsþrýstingi í jarðhitageyminum.\"