Atvinnulífið kynnir sér hvalaskoðanir

Húsavík er aðala miðstöð hvalaskoðana við Ísland en þaðan eiga elstu hvalaskoðunarfyrirtæki á Íslandi rætur sínar að rekja.  Eitt þeirra er Gentle Giants - Hvalaskoðanir ehf. sem var stofnað árið 2001 og rekur í dag 8 báta af tveimur mismundandi gerðum sem erlendir ferðamenn sækjast eftir ferðum með í auknum mæli.  Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld og þar fara umsjónarmaður þáttarins, Sigurður K. Kolbeinsson og Friðþjófur Helgason kvikmyndatökumaður með Stefáni Guðmundssyni eiganda Gentle Gianst í hvalaskoðun frá Húsavík út á Skjálfandaflóa.  Auk þess verður spjallað við Stefán um sögu fyrirtækisins og reksturinn undanfarin ár og m.a. komið inn á hina margfrægu Rib-báta sem eru að riðja sér til rúms í hvalaskoðunum.  Í þættinum má sjá nokkar hvali \"blása úr nös\" og koma upp á yfirborðið í nokkurra metra fjarlægð frá bátnum.