Alltaf þegar við höldum að Trump geti ekki gengið lengra, þá bætist eitthvað yfirgengilegt við. Núna hafa golfvellir Trump samsteypunnar pantað nýjar merkingar, með nýju lógói, sem er skjaldarmerki forsetaembættisins.
Samkvæmt alríkislögum er notkun skjaldarmerksins aðeins leyfð í opinberum tilgangi. Misnotkun kann að varða við lög. Fyrri ríkisstjórnir hafa framfylgt þeim af festu. Bush stjórnin krafðist þess til dæmis 2005 að háðsritið The Onion fjarlægði mynd af skjaldarmerkinu sem það hafði birt.
Golfvellir Trumps hafa pantað framleiðslu á tugum skilta með skjaldarmerkinu sem á að setja upp á golfvöllunum. Merkin eru notuð þar sem golfkúlum er stillt upp við upphaf hverrar holu. Merkin virðast hafa verið pöntuð fyrir Trump International golfvelli, sem eru nú fjórir talsins í Bandaríkjunum og erlendis.