Skjalabögglar opnaðir 26.10.nk

Í ár eru hundrað ár frá fæðingu John Fitzgerald Kennedy (29.5.1917 - 22.11.1963).  Hann var 35. forseti Bandaríkjanna. Kennedy sór embættiseið hinn 20.janúar árið 1961.

Hann var drepinn af launmorðingja eða launmorðingjum í Dallasborg í Texasríki hinn 22.nóvember 1963. Þrálátur orðrómur hefur verið um að morðið sé hluti af samsæri.

Kennedy var næst yngstur til að gegna embætti forseta Bandaríkjanna. Kennedy þótti hófsemdarmaður um marga hluti og einkum þó í skoðnum og taldist fylgjandi friðsamlegum lausnum í innanlandsmálum jafnt og utanríkismálum. Þetta er þó umdeilt viðhorf.   

Miklar getgátur hafa ávalt verið um hver hvort morðingi Kennedy var einn að verki eða hvort fleiri morðingjar áttu aðild að morðinu.  Líklegt þykir að um samsæri hafi verið að ræða. En hverjir höfðu hag af morðinu vekur ágengar spurningar sem enn í dag valda hatrömmum ágreiningi.

Innihald þeirra skjalaböggla sem áformað er að opna í haust kunna að varpa ljósi á sannleiksgildi samsæristilgátunar. Einn maður getur bannað að innihald skjalabögglanna verði gert aðgengilegt. Sá er forseti Bandaríkjanna. Ekkert bendi þó til þess.