Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er í viðtali við Morgunblaðið í dag. Þar segist hann ekki vilja tjá sig um stefnu Framsóknarflokksins, flokksins sem hann er í framboði fyrir. Hann vill eftirláta arftaka sínum á formannsstóli, Sigurði Inga Jóhannssyni, og nýjum varaformanni, Lilju Alfreðsdóttur, það eftir.
„Ég tel rétt að ég einbeiti mér nú að málefnum kjördæmisins en gefi þeim sem hafa tekið að sér að leiða mál á landsvísu svigrúm til þess. Það fer því sennilega best á því að þeir sem settu saman og kynntu kosningastefnuna tali fyrir henni og þeim málum sem þar eru sett á oddinn,“ segir Sigmundur Davíð í viðtalinu.
„Hér í Norðausturkjördæmi er verk að vinna og mörg brýn verkefni bíða. Það er hugur í framsóknarmönnum í Norðausturkjördæmi, eðlilega voru margir slegnir út af laginu eftir flokksþingið og atburðarásina þar og í aðdraganda þess,“ segir Sigmundur Davíð við Morgunblaðið.
Í Morgunblaðinu í gær sagði Sigurður Ingi Jóhannsson að þeir Sigmundur Davíð hefðu átt trúnaðarsamtöl eftir átakamikið flokksþing. Það virðist þó vera ofmælt, samkvæmt orðum formannsins fyrrverandi. „Við höfum skipst á smáskilaboðum í síma um að við myndum hittast þegar ég kem úr kjördæminu,“ segir Sigmundur Davíð, segir í Morgunblaðinu.
Greinilegt er að ekki er góður mórall í Framsókn. Þar virðist hreinlega vera skítamórall.
-sme