Skipun skiptastjóra er ógagnsætt ferli

Skipun skiptastjóra yfir þrotabúum er ógagnsæ. Lögmenn setja sig á lista en það er ekkert gagnsæi í því hvers vegna viðkomandi fær umrætt þrotabú. Þetta segir Sævar Þór Jónsson lögmaður og einn eiganda Lögmanna Sundagörðum.

Athygli hefur vakið að hæstaréttarlögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Þorsteinn Einarsson hafi verið skipaðir skiptastjórar þrotabús WOW air. Fréttavefurinn Túristi nefnir að Þorsteinn hafi verið lögmaður ISAVIA sem á tæpa tveggja milljarða kröfu í þrotabúið. Enn fremur hefur verið bent á í fjölmiðlum að Sveinn Andri sé skiptastjóri EK 1923, áður heildverslunin Eggert Kristjánsson, og ágreiningsmál sé til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem fjórir kröfuhafar hafa lagt fram kvörtun gegn lögmanninum.

Sævar Þór segir að það sé mikilvægt að það sé gagnsæi þegar dómstólar úthluti því hverjir verði skiptastjórar þrotabúa. „Það er verið að úthluta verkefnum til aðila sem eiga að sinna starfi sínu eins og opinberir aðilar. Það er því mikilvægt að það séu skýrar leikreglur og upplýst hvers vegna viðkomandi fái ákveðin þrotabú. Dómstólar þurfa að auka gagnsæi sitt hvað þetta varðar,“ segir Sævar og nefnir að ríkja þurfi sátt um skipunina.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/markadurinn/skipun-skiptastjora-er-ogagnsaett-ferli/