Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sendi fyrr í dag út yfirlýsingu um skipun fimmtán dómara við Landsrétt. Forsetinn segir í þessari yfirlýsingu að með hliðsjón af öllum málavöxtum sem nánar eru raktir eru í yfirlýsingu hans hafi hann komist að þeirri niðurstöðu að mistök hafi ekki átt sér stað við undirbúning og tilhögun atkvæðagreiðslunnar á Alþingi hinn 1.júní sl. og hún hefði verið í samræmi lög og þingvenjur og þingsköp.
Forseti Íslands undirritaði því fyrr í dag skipunarbréf fimmtán dómara við Landrétt tveimur sólarhringum eftir að honum bárust þau í hendur. Undirritun forseta Íslands staðfestir stjórnarathafnir löggjafavalds og framkvæmdavalds. Staðfesting forseta Íslands er að öllu jöfnu formlegs eðlis og sjálfsögð.
Enda er það skýrt tekið fram í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands að forseti Íslands er ábyrgðarlaus af stjórnarathöfnum og lætur forsetinn ráðherra framkvæma vald forseta Íslands. Sú staða getur vissulega komið upp að forseti Íslands þurfi að íhuga hvort hann vilji staðfesta stjórnarathafnir.
rtá
Nánar www.forseti.is