Skipuleggjandi hryðjuverkanna látinn

Saksóknari í Frakklandi hefur staðfest að Abdelhamid Abaaoud, sem er talinn hafa skipulagt hryðjuverkin í París á föstudagskvöld, hafi látist í áhlaupi frönsku lögreglunnar á St. Denis-íbúðahverfið aðfaranótt fimmtudags.

Að því er fram kemur á fréttavef RÚV voru borin kennsl á hann með fingrafararannsókn.