Tillaga Höskuldar Þórhallssonar, formanns umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, um að skipulagsvald Reykjavíkurflugvallar færist frá borginni til ríkisvaldsins var afgreidd úr nefnd í morgun.
Meirihluti nefndarinnar leggur þar til að skipulagsvald yfir öllum flugvöllum sem geta sinnt millilandaflugi er tekið af viðkomandi sveitarfélögum sem þýðir þá jafnframt að Akureyri og Egilsstaðir missa valdið yfir sínum flugvallarsvæðum.
Minnihlutinn í nefndinni kveðst gáttaður á þessu vinnulagi, hér séu á ferðinni forkastanleg vinnubvrögð og yfirgangur sem sé formani nefndarinnar og meirihluta hennar til skammar. Viðkomandi sveitarfélög hafi ekki einu sinni fengið tækifæri til að mæta á fund nefndarinnar eins og Svandís Svavarsdóttir segir á Facebook-síðu sinni stalla hennar Katrín Júlíusdóttir segist hafa haldið að stjórnarmeirihlutinn gæti ekki komið sér á óvart lengur.