Skipulag fyrst svo fiskeldi

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar vill að sérstök gjöld verði lögð á mannvirki í sjó. Morgunblaðið segir frá þessu.

Þetta kemur fram í stefnu sveitarfélagsins í fiskeldismálum en þar leggst sveitarfélagið gegn öllu fiskeldi í sjókvíkum í Viðfirði og í Hellisfirði. Þó mikil uppbygging sé fram undan í fiskeldi í sjókvíum er ekkert skipulag í gildi úti á fjörðum og ekki komið á hreint hvernig standa eigi að gerð slíks skipulags.

Morgunblaðið segir að félögin Lax fiskeldi og Fiskeldi Austfjarða áformi umfangsmikið fiskeldi í sjóvkíuum í nokkrum af fjörðum Fjarðabyggðar þ.e. Mjóafirði Reyðarfirði Fáskrúðsfirði Stöðvarfirði og í Norðfjarðarflóa.

Blaðið hefur eftir Páli Björgvin Guðmundssyni bæjarstjóra Fjarðabyggðar að uppbygging í fiskeldi sé mjög hröð og því hefðu sveitafélagið og ríkið þurft að velta þessu  betur fyrir sér skipulagslega séð.

Ekki sé enn þá nákvæmlega mælt fyrir um það í lögum hvernig standa beri að skiðpulagningu fjarða.

Bæjaryfirvöld á Fjarðabyggð vilja sjálf fá að skipuleggja firðina þó áform séu um að sérstökum svæðisráðum verði falið að fara með skipulagsvald á hafsvæðum úti á fjörðum.

Í fiskeldisstefnu Fjarðabyggðar er mælst til þess að stjórnvöld leggi gjald á fiskeldi líkt og gert er í Noregi þar sem stór hluti slíks gjalds rennur til sveitarfélaga.

rtá

Nánar www.mbl.is  www.fjardabyggd.is