Fram kom í þættinum Atvinnulífið sem var á dagskrá Hringbrautar í gærkvöld hversu afdrifaríkar afleiðingar það voru fyrir fyrrum eigendur fyrirtækisins Sigurplasts þegar gengistryggð lán þess voru endurreiknuð árið 2007.
Áður en endanlegir dómar féllu í sambærilegum málum í Hæstarétti árið 2010 máttu fyrrum eigendur Sigurplasts þola það ástand að ná ekki samningum við viðskiptabanka sinn eftir að hafa verið stefnt fyrir vanskil á lánasafni sem upphaflega nam um 260 millj. króna. Arion banki fór fram á að eigendur greiddu bankanum rúmar 1.100 milljónir en síðar átti eftir að koma í ljós að krafan var byggð á röngum og ólögmætum útreikningum og var í raun rúmar 400 milljónir skv. mati eins virtasta ráðgjafahúss á Íslandi. Það sem vekur athygli er að skiptastjórinn Grímur Sigurðsson, hrl, fékk 50 millj. kr. í reiðufé fyrir þrotabú sem í raun var veðsett með alsherjarveði í öllum eignum og skuldum félagsins og hann notaði alla fjármunina auk 14 milljóna til að starfa fyrir búið á um 6 ára tímabili. Þóknun lögmannsins var rúmar 25 milljónir og auk þess keypti hann skýrslu frá Ernst & Young sem ekki stóðst skoðun og greiddi fyrir hana rúmar 18 milljónir. Þar fyrir utan tapaði Grímur Sigurðsson öllum málum að undanskyldu riftunarmáli sem snérist um 187 þús. kr. og varð á endanum að endurgreiða rúmar 6 millj. krónar til lögmanns fyrrum eigenda Sigurplasts. Þessir 3 liðir námu því um 50 milljón króna en auk þess eyddi Grímur rúmum 14 milljónum í alls kyns kostnaðarliði. Allar þessar tölur koma fram í skýrslu um Skiptalok sem fóru fram í júní árið 2016 og verður fjallað nánar um í þætti kvöldsins.
Usmjónarmaður Atvinnulífsins er Sigurður K. Kolbeinsson en kvikmyndataka er í höndum Friðþjófs Helgasonar. Þátturinn er endursýndur í dag og einnig aðgengilegur inni á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.