Skiptar skoðanir um lögleiðingu kannabis

 

MMR hefur kannað afstöðu fólks til þess hvort gera ætti neyslu kannabisefna löglega á Ísland.  Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 23,2% vera fylgjandi því að lögleiða neyslu kannabisefna, en 76,8% sögðust vera andvíg. Í ljós kom að mikill munur er á afstöðu til lögleiðingar kannabis eftir samfélagshópum, sér í lagi ef litið er til aldurs, kyns og stuðnings við stjórnmálaflokka.

 

\"1604

Spurt var: Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ert þú því að neysla kannabisefna verði gerð lögleg á Íslandi?
Svarmöguleikar voru: mjög andvíg(ur), frekar andvíg(ur), frekar fylgjandi, mjög fylgjandi og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 92,9% afstöðu til spurningarinnar.

Munur á afstöðu milli hópa

Karlar eru mun hlynntari því að neysla kannabisefna verði gerð lögleg á Íslandi en konur. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 31,1% karla vera fylgjandi lögleiðingu á neyslu kannabisefna, borið saman við 15,1% kvenna.

Stuðningur við lögleiðingu á neyslu kannabisefna eru mun meiri hjá yngri aldurshópum. 41,3% þeirra sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára) sögðust vera fylgjandi lögleiðingu á neyslu kannabisefna, borið saman við 25,9% þeirra sem tilheyrðu aldurshópnum 30-49 ára, 10,2% þeirra sem tilheyrðu aldurshópnum 50-67 ára og 4,8% þeirra sem tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri).

Að lokum má benda á að fólk sem styður Pírata er mun líklegra til að vera fylgjandi lögleiðingu kannabis, en 44,7% stuðningsmanna flokssins sögðust fylgjandi lögleiðingu kannabis, á meðan stuðningsmenn Framsóknar og Samfylkingarinnar voru andvígastir lögleiðingu kannabis. 

Sjá má niðurstöður MMR í heild hér.

Mikil umræða hefur orðið í samfélaginu um hvort afglæpavæða eigi þannig að neysluskammtar verði ekki saknæmir og að líta beri á fíknvanda sem heilbrigðismál en ekki sakamál eins og nú er samkvæmt refsilöggjöf.