Mjög skiptar skoðanir eru meðal Pírata um fund sem Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingar og formannskandídat, er sagður hafa haft frumkvæði að og fer fram í Iðnó á morgun með nokkrum pólitískum fulltrúum ólíkra hreyfinga. Hringbraut sagði fyrst frá fundarboðinu seint í gærkvöld en þar kemur fram að yfirskrift fundarins er: Eigum við að vinna saman? Fundarstjóri er Magnús Orri Schram en málshefjendur eru Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata, Ilmur Kristjánsdóttir borgarfulltrúi BF, Margrét Tryggvadóttir fyrrverandi þingmaður Hreyfingarinnar og Rósa Björk Brynjólfsdóttir varaþingmaður VG
Á Pírataspjallinu, vefsvæði Pírata á facebook, póstar Birgitta Jónsdóttir fundarboðinu og spyr pírata hvað þeim finnist um hinn fyrirhugaða fund. Hún auglýsir ennfremur eftir svörum frá samflokksþingmanni hennar, Helga Hrafni Gunnarssyni og tekur fram í ummælum að hún hafi ekki vitað af því að hann ætlaði sér að taka þátt í þessum fundi.
Margir leggjast í umræðum á spjallinu gegn því að boðað sé hugsanlegt samstarf eða samkrull milli Pírata, Samfylkingar og e.t.v. fleiri flokka. Birgitta Jónsdóttir spyr þó: \"Hvað er að því að bjóða fram í sitthvoru lagi en ganga til kosninga þannig að það liggi fyrir, fyrir kosningar hvernig samstarfssamningurinn lítur út?\"
Þór Saari, fyrrum þingmaður Hreyfingarinnar, forvera Pírata skrifar: \"Þó vissulega eigi að mæta öllum boðum um samstarf með opnum huga sýnist mér hér að a) það sé verið að leggja snöru fyrir Pírata og b) að þetta snúist um framboð Magnúsar Orra til formanns Samfó. Þið þurfið því að fara varlega. Dagur B. og Magnús Orri eru nefnilega ekki \"umbótaafl\".\"
Aðrir nefna að þeir hafi ekki trú á að samtöl geti verið skaðleg.
Margrét Tryggvadóttir fv. þingmaður Hreyfingarinnar, ein þeirra sem tala mun á fundinum, segir vegna ummæla um að Píratar séu að pissa utan í aðra flokka: \"Vá, hvað þetta er mikil paranoja! Þingmenn fá boð um þátttöku á allskonar fundi með allskonar fólki án þess að \"verið sé að pissa utan í þá\". Þarna er fólk frá fimm stjórnmálaflokkum. Hvernig í ósköpunum sjá menn það út að það sé eitthvað verið að \"pissa utan í pírata?\" Þessi fundur er ekki einu sinni á vegum Samfylkingarinnar. Hvernig væri svo að skola á sér munninn eftir svona orðbragð?\"