Ólíkt mat á átökum bjarna og eyglóar

Skiptar skoðanir eru um orsakir opinberra deilna Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráðherra og Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra vegna húsnæðisfrumvarpa hennar.


Tveir pennar á vefritinu Herðubreið, þeir Björn Valur Gíslason og Jón Daníelsson lýsa þessum andstæðu viðhorfum á vefnum þessa dagana.


Björn Valur virðist taka undir þau sjónarmið Bjarna, að frumvörp Eyglóar séu vanbúin og því ekki tæk til kostnaðarmats. Þess vegna væri algerlega ábyrgðarlaust af henni að leggja þau fram, eins og hún hefur sagst munu gera, breytist afstaða fjármálaráðuneytisins ekki.


Jón telur deilurnar hins vegar af pólitískum rótum, ekki faglegum eða tæknilegum. Sjálfstæðisflokkurinn sé einfaldlega á móti hugmyndum hennar um stofnframlög til leigufélaga, sem hyggist byggja leiguhúsnæði í almannaþágu að norrænni fyrirmynd. Bjarni telji sig geta komið svona fram við Eyglóu, m.a. vegna þess að framsóknarmenn óttist fátt meira en kosningar við núverandi aðstæður.