Skipaði ekki neinum fyrir í prófkjörinu

Birgitta skrifar í dag á facebook síðu sína að þær alvarlegu ásakanir sem á hana séu bornar, um að hafa beitt óeðlilegum þrýstingi  í prófkjör Pírata í Norð-Vesturkjördæmi, eigi ekki við rök að styðjast. Nokkrir Píratar hafa undanfarið sagt Birgittu hafa beitt bolabrögðum. 

Birgitta skrifar: “Ég hef ekki hringt í fólk í þeim tilgangi að hvetja það til að kjósa á einhvern tiltekinn hátt í prófkjörum Pírata undanfarnar vikur. Ég hef heldur ekki farið fram á að fólki sé raðað á lista eftir einhverri tiltekinni röð, né að listum sé hafnað, hvað þá að ég hafi skipað fyrir um nokkuð í því samhengi; enda hafði ég ekki til þess umboð, vald eða vilja”.

Birgitta segist vilja gjarnan funda með hlutaðeigandi við fyrsta tækifæri til að reyna að skilja hvernig píratar fyrir vesta og víðar hafi upplifað atburðarás undanfarinna vikna. Hafi upplifun einhverra verið sem svo að ég hafi verið að hlutast til um hvernig málefnum Norð-Vesturkjördæmis ætti að vera háttað, þá hafi það alls ekki verið sinn ásetningur.

Að lokum skrifar hún: “Ég hef fulla trú á því að við Píratar getum leyst þetta í sameiningu þannig að við komum sterkari út úr þessari prófraun”.