Skip á vegum greenpeace heimsækir reykjavík

Skip Greenpeace, Esperanza, er nýkomið til Reykjavíkurhafnar í vikulanga heimsókn, sem hluti af stærsta leiðangri samtakanna til þessa. Skipið mun taka þátt í árslöngum leiðangri frá Norðurslóðum til Suðurskautsins. Í leiðangrinum eru gerðar náttúrurannsóknir og athygli vakin á þeim hættum sem steðja að höfunum, ásamt því að vekja athygli á þeirri lausn sem felst í “Parísarsamkomulagi hafsins”: væntanlegum úthafssamningi Sameinuðu þjóðanna.

“Höfin okkar eru í dag undir meira álagi en nokkurn tímann áður, ýmist vegna loftslagsbreytinga, súrnun sjávar, ofveiði og mengunar. Rannsóknir gefa skýrt til kynna að fyrir árið 2030 þurfum við að koma á netverki griðarsvæða sem þekja a.m.k. þriðjung úthafanna ef við ætlum að vernda dýrmætt lífríki sjávar, takast á við loftslagsbreytingar og tryggja fæðuöryggi milljarða manna”, segir Frida Bengtsson sem stýrir ‘Verndum höfin’ leiðangrinum hjá Greenpeace.

Samningaviræður um úthafssamning Sameinuðu þjóðanna eru nú þegar hafnar. Ísland, sem þjóð með aldagamla hefð fyrir því að lifa af hafinu, ætti að taka frumkvæði og setja tóninn fyrir samningaviðræðurnar og stuðla að öflugri stýringu á vernd og sjálfbærri nýtingu úthafanna, meðal annars með netverki griðarsvæða í hæsta verndarflokki.

“Væntanlegur úthafssamningur Sameinuðu þjóðanna hefur verið kallaður “Parísarsamkomulag fyrir höfin okkar” og gæti lagt grunn að raunverulegri vernd og endurheimt sjávarvistkerfa. Ísland getur átt lykilhlutverk í þessu ferli”, segir Frida Bengtsson sem stýrir ‘Verndum höfin’ leiðangrinum hjá Greenpeace.

Leiðangurinn hófst nýverið á Norðurslóðum og mun honum ljúka við Suðurskautslandið eftir tæpt ár en verkefnið ber nafnið Verndum höfin. Á leiðinni mun skipið sigla um svæði sem þurfa að njóta sérstakrar verndar og verða gerðar rannsóknir á þeim hættum sem steðja að hafinu, svo sem loftslagsbreytingum, ofveiði, plastmengun, námuvinnslu á sjávarbotni og olíuvinnslu. Skip Greenpeace, Esperanza, er í Reykjavík þessa vikuna og er það opið fyrir almenningi. Greenpeace skipuleggur einnig ókeypis tónleika með hljómsveitinni Mammút hjá Hvalasýningunni á Granda.