Skagafjörður

Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri sagði á aðalfundi Kaupfélags Skagfirðinga (KS) að rekstur á síðasta ári hafi verið sambærilegur og árið 2015.

Hagnaður KS á síðasta ári var 1,367 milljarðar króna. Frá þessu segir í blaðinu Feyki. Þetta eru nokkur tíðindi þvi forsvarsmenn KS  sögðu að bæði þátttaka Íslands í þvingunaraðgerðum gegn Rússlandi og mótvægisaðgerðir Rússlands kæmu mjög illa við rekstur KS. 

Laun og launtengd gjöld KS voru 7,5 milljarðar króna árið 2016. Eigið fé KS var 27,8 milljarðar króna.