Skilur ekki sjálfsfróun og kúk almars

Óhætt er að segja að listgjörningur Almars, sem nú fer fram frammi fyrir öllum heiminum, þar sem hann dvelur í glerkassa og sent er beint út frá á youtube, sé umræðuefni augnabliksins.

Mjög skiptar skoðanir eru gjörninginn. Sumir láta sér fátt um finnast, aðrir taka andköf af hrifningu en svo eru þeir líka til sem sjá ekkert vit í athæfinu.

Einn úr síðastnefnda hópnum er Eiður Guðnason, fyrrum sendiherra og fréttamaður og dregur skólann inn í umsögn sína:

„Getur einhver útskýrt fyrir mér fáfróðum á hvaða forsendum listaháskóli þjóðarinnar flokkar það sem list að húka allsnakinn í glærum kassa , sólarhringum saman, kûka í allra augsÿn og fróa sér?“

Þannig spyr Eiður é eigin fésbók og bætir við:

„Kannski er ég bara pûkó og gamaldags að leyfa mér að spyrja.“