Skiljanleg reiði

Jón Gunnarsson, samgönguráðherra, segist skilja þá reiði sem er uppi vegna samgönguáætlunar. Verkefnin sem ekki er hægt að ráðast í sýni svo ekki verði um villst að málaflokkurinn þarfnist meiri fjármuna, ekki síst með tilliti til aukins straums ferðamanna til landsins. Jón var á Þjóðbraut í gærkvöldi.

Ekki er þó enn víst hvaða verkefni verði ofaná á þessu ári og eru að finna í samgönguáætluninni sem samþykkt var í fyrrahaust. Tíu milljarða vantar upp á í fjárlögum til að hægt sé að framfylgja áætlun um samgöngubætur um allt land. 

Mikil reiði ríkir um allt land vegna niðurskurðar eða frestana á samgöngubótum sem Jón boðaði.