Már Guðmundsson segir að SÍ sé tilbúinn að draga úr innflæðishöftum SÍ. Már segir enga góða valkosti vera við krónu með góðri peningastjórnun. Bloomberg fréttastofan tók nýverið viðtal við Má.
Þar segir Már að íslenska króna sé farin að haga sér meira og meir eins og venjulegur gjaldmiðill. Styrking krónunnar er hvorki drifin áfram af spákaupmennsku né á ójafnvægi.
Már áréttar að peningamálstefna SÍ sé aðhaldssöm sem kemur í veg fyrir ofhitnun íslenska hagkefisins. Um síendurtekin ummæli fjármálaráðherra Benedikts Jóhannessonar um að binda gengi krónunnar við erlendan gjaldmiðil sé það eitt að segja að því hafna bæði forsætisráðherra og SÍ.
Már bætir því við að ef Ísland vill gefast upp á krónunni núna þegar króna er að skila árangri þá verður gjaldmiðillinn sem telst vera valkosturinn að vera sérlega góður.
Seðlabankastjórinn bætti því við að hann sé ekki viss um að sá valkostur sé til en hann slær þó þann varnagla að það eigi eftir að koma í ljós. Frá þessu er sagt í Viðskiptablaðinu.
Nánar www.vidskiptabladid.