Skila ekki skömm sem var aldrei mín

\"Það er eng­in upp­hæð að fara að verða nógu há til þess að af­leiðing­arn­ar verði skárri fyr­ir mig. Það er eng­inn dóm­ur sem hann er að fara fá sem breyt­ir neinu um hvaða áhrif þetta hafði á mig.“

Þetta seg­ir Júlía Birg­is­dótt­ir, en um síðustu ára­mót komst hún að því að maður sem hún hafði átt í stuttu sam­bandi við hafði tekið mynd­band af því þegar þau sváfu sam­an og að upp­tak­an hefði ratað á netið, en hún steig fram í Kastljósi á RÚV í gærkvöld þar sem hún sagði meðal ann­ars að hana hefði aldrei grunað að hún myndi standa í þess­um spor­um tveim­ur árum eft­ir að hún hitti mann­inn, sem er ekki orðinn þrítug­ur.

Maður­inn var bú­sett­ur er­lend­is á meðan sam­band­inu stóð og fóru sam­skipti hans og Júlíu að mestu fram á Face­book og Skype, að því er fram kemur í frétt RÚV um málið sem hér er vitnað til. Á ein­um tíma­punkti spurði hann Júlíu hvort hann mætti taka náin sam­skipti þeirra upp en hún neitaði.

Síðasta skiptið þegar þau hitt­ust gerði hann hins veg­ar upp­töku án vit­und­ar Júlíu og tveim­ur árum síðar komst hún að því að upp­tak­an hafði ratað á netið. Nafn henn­ar kem­ur hvergi fyr­ir en hún seg­ir myn­bandið á hundruðum klámsíða og að horft hafi verið á það að minnsta kosti 200.000 sinn­um.

Júlía brotnaði niður, enda höfðu sam­skipti þeirra aldrei verið með þeim hætti að hann hefði ástæðu til þess að reyna að ná sér niður á henni per­sónu­lega. Júlía reyndi í fyrstu að fá mann­inn til að gang­ast við brot­inu, sem hann gerði ekki, og seg­ir að á sín­um tíma hefði dugað henni að fá ein­læga af­sök­un­ar­beiðni.

Nú hef­ur hún hins veg­ar bæði kært málið til lög­reglu og höfðað einka­mál á hend­ur mann­in­um: \"Ég bara inni­lega treysti ekki lög­regl­unni til að klára þetta í saka­máli,“ seg­ir Júlía um ástæður þess að hún höfðaði einka­málið.

\"Það er eng­inn hefnd­arþorsti sem ligg­ur að baki held­ur bara rétt­lætis­kennd,“ seg­ir Júlía. Hún seg­ist mót­fall­in því að talað sé um hefnd­arklám í mál­um sem þess­um, þar sem orðið gefið til kynna að um hefnd sé að ræða og klám, en ekki kyn­ferðis­brot.

Júlía hef­ur farið fram á 14 millj­ón­ir í skaðabæt­ur, meðal ann­ars til að standa straum af kostnaði við að reyna að hefta út­breiðslu mynd­bands­ins á net­inu. Hún seg­ir eitt­hvað mikið að í sam­fé­lagi þar sem staðan sé sú að fyrstu til­finn­ing­arn­ar sem hún upp­lif­ir séu skömm og hræðsla.

\"Ég ætla ekki að segja að ég sé að skila skömm­inni,“ seg­ir hún um ákvörðun sína um að stíga fram, \"því hún var aldrei mín,“ sagði Júlía í Kastljósi í gærkvöld.

Mynd: RÚV.