Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, segist skilja stöðu Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráðherra innan ríkisstjórnarinnar. Eygló hefur lýst erfiðri stöðu sinni í ríkisstjórn, einkum í samskiptum sínum við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins.
Sigríður Ingibjörg lofar samstarfið alla nefndarmenn velferðarnefndar og segir margt gott hafa verið unnið þar. Sem formaður nefndarinnar segist hún ekki geta verið eins hörð í stjórnarandstöðu og óbreyttur nefndarmenn geta gert.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir segist ætla að vinna gegn hugmyndum að einkareknum spítala í Mosfellsbæ, sem hún segir ógn við íslenskt heilbrigðiskerfi.
Viðtal við Sigríði Ingibjörgu er á dagskrá Þjóðbrautar í kvöld.