Skil ingibjörgu sólrúnu

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, hefur sagt að hún treysti ekki Oddnýju G. Harðardóttur, núverandi formanni Samfylkingarinnar, vegna þess hvernig Oddný starfaði í Landsdómsálinu.

„Ég skil Ingibjörgu Sólrúnu. Ég veit ekki hvort afstaða mín nú yrði önnur en hún var árið 2010. Hvort það sem ég veit núna, en vissi ekki þá, myndi breyta afstöðu minni,“ segir Oddý í viðtali sem verður á dagskrá Þjóðbrautar á Hringbraut í kvöld.

„Það segir sig sjálft, ég get ekki stutt Oddnýju. Hún er sjálfsagt vænsta kona en ég get ekki stutt hana því mér fannst hún bregðast. Mér fannst hún sýna dómgreindarbrest í Landsdómsmálinu sem nefndarmaður. Ég veit ekki hvernig það gerðist að hún gerði þetta, hvernig hún komst að þessari niðurstöðu, ég hef aldrei getað skilið það,“ sagði Ingibjörg Sólrún meðal annars í viðtali við Fréttablaðið.

Oddný talar einnig um fjárlagafrumvarp næsta árs, veiðigjöld, heilbrigðiskerfi og gjaldtöku á ferðaþjónustuna.