Skíðasvæði víða um land verða opin í dag, færi er víða gott og vel viðrar til skíðaiðkunar. Opið verður á skíðasvæðinu í Seljalandsdal á Ísafirði frá kl. 10 og að sögn forsvarsmanna skíðasvæðisins er veður þar „að sjálfsögðu æðislegt“.
Ekki er þó opið á skíðasvæðinu í Tungudal, því þar vantar enn upp á snjó að því er fram kemur í samantekt á mbl.is í morgun, en vonir standa til að hægt verði að opna þar síðar í vikunni eða í þeirri næstu.
Skíðasvæðið á Siglufirði verður opnið á milli kl 11 og 16. Klukkan 8 í morgun var þar 4 stiga frost, lítilsháttar gola og heiðskírt. Í Hlíðarfjalli verður opið kl 10-16 og klukkan 8 í morgun var þar 6 stiga frost og 2 m/s, samkvæmt upplýsingum frá skíðasvæðinu.
Á vefsíðu skíðasvæðisins í Bláfjöllum segir að opið verði þar í dag á milli klukkan 10 og 17. Búist er við því að þar hvessi eftir hádegi og því er skíðafólk hvatt til að taka daginn snemma. Þar er færið troðinn og þurr snjór.
Skíðasvæðið á Dalvík verður opið á milli klukkan 10 og 16 í dag. Þar er, að sögn svæðisstjóra, hið besta skíðaveður, logn og 4 stiga frost.
Þá verður skíðasvæði Tindastóls opið á milli kl 14 og 19 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá forstöðumanni svæðisins er þar nægur og góður snjór.