Skerum burt auðheima eins og krabba

\"Ég ligg hér á spítalanum eftir volduga aðgerð til þess að lækna mig af krabba og umvafinn kærleik og ótrúlegri ósérhlífni allra þeirra sem hér koma við sögu. Nú þegar ég skrifa þetta er bein útsending á skjánum á veggnum fyrir framan rúmgaflinn neðan af þingi þar sem fulltrúar \"auðheima\" eru að setja lög á þetta fólk sem við umönnun starfar.\"

Með þessum orðum byrjar Facebook-færsla listamannsins Tolla sem hefur undanfarið barist við krabbamein í blöðruhálskirtli. Hann skrifar áfram: \"Það furðulega er að við öll munum þurfa að fara í gegnum veikindi, við eldumst og svo kveðjum við.\"

Tolla er umhugað um litla samfélagið sitt: \"Sú mynd sem þessi neyðarlög birta okkur er það samfélag sem auðheimar eru að smíða fyrir sig, þeir ráðast á sameign okkar sem er okkar samfélag og þau gildi sem það stendur fyrir eins og krabbi sem ræðst á heilbrigt líf. Auðheimar  ætla sér að bíssnessvæða kærleikann, þeir eru að yfirtaka af algjöru miskunnarleysi allt sem við eigum saman og gerir okkur af því sem við erum.\"

Og hann heldur fast á penna: \"Þetta er krabbamein, þessi \"auðheimapólitík\" og hér á spítalanum er lausnin við krabbameini sú að það er fjærlægt með öllum tiltækum ráðum. Við höfum verk að vinna. Virkjum storminn, ást og friður.\"