Fyrirséð er að neikvæð áhrif verða mest á landsbyggðinni. Þegar kostnaður ferðamanna hækkar um tugi prósenta vegna launahækkana og gengisþróunar og hærri virðisaukaskatts hafa þeir minni fjárráð sem ferðast um landið.
Fótunum verður kippt undan rekstrarhæfi fyrirtækja á landsbyggðinni sem mjörg eru lítil og hafa fjárfest mikið að undanförnu. Atvinnu- og samfélagsuppbygging verða því í hættu.
Á vef Alþingis má lesa umsagnir um fjögur hundruð fyrirtækja og stofnana og hagsmunaaðila í ferðaþjónustunni sem sendar hafa verið Alþingi.
Í þessum umsögnum kemur skýrt fram hversu mikil ógnun forsvarmenn innan og utan ferðaþjónustunnar telja standa af áformum ríkisstjórnarinnar.