Skerðingin sem þruma úr heiðskíru lofti

Landsþing Samband íslenskra sveitarfélaga krefst þess að áform ríkisstjórnarinnar um að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs verði dregin til baka. Formaður sambandsins segir að samstarf ríkis og sveitarfélaga hafi að undanförnu verið með besta móti en skerðing á framlögum hafi komið sem þruma úr heiðskíru lofti. 
 

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga stendur nú yfir á Grand hóteli í Reykjavík. Aldís Hafsteinsdóttir, formaður, sagði í setningarræðu sinni í morgun að sveitarfélög þyrftu að búa sig undir aukinn kostnað vegna nýrra kjarasamninga. Launahækkanir þeirra lægst launuðu muni sveitarfélög axla með glöðu geði, en flest bendi til þess að herða verði sultarólina, eins og Aldís orðaði það. Um leið verði að hafa í huga að sveitarfélög verði af umtalsverðum tekjum vegna svartrar atvinnustarfsemi. 

Nánar á


http://www.ruv.is/frett/skerdingin-sem-thruma-ur-heidskiru-lofti