Skemmtistaðurinn Shooters Coyote Club er til rannsóknar hjá lögreglu vegna gruns um milligöngu með vændi. Þetta staðfestir Aldís Hilmarsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við Stundina í dag.
Lögreglunni er auk þess kunnugt um hús sem stendur við Hrísateig 14, en þar búa starfsmenn skemmtistaðarins. Stundin hefur rætt við nágranna sem eru uggandi vegna þess sem þeir hafa orðið vitni að fyrir utan húsið.
Áðurnefnt hús í Teigahverfinu lætur lítið yfir sér, en hefur vakið athygli nágranna vegna fjölda erlendra kvenna sem þar búa og eru sóttar reglulega að kvöldi til. Eftir ábendingar nágranna fylgdist blaðamaður Stundarinnar með húsinu eina kvöldstund og líkt og nágrannar töluðu um voru þrjár konur sóttar rétt fyrir klukkan níu á fimmtudagskvöldi og þær keyrðar niður í miðborg Reykjavíkur.
Íbúar í nágrenni við Hrísateig 14 segjast hafa orðið varir við eitt og annað sem hefur valdið þeim áhyggjum. Einn segist hafa séð þrettán fáklæddar konur koma að húsinu í sendibíl seint að nóttu. „Þær voru þannig klæddar að ég sá að þetta var ekki eðlilegt, svo ég fór að fylgjast með þessu og ræddi það við nágranna minn. Þegar við bárum saman bækur okkar sáum við að þetta virðist vera mjög skipulagt. Þær fara alltaf út á milli átta og níu á kvöldin og eru þá sóttar á nokkrum bílum,“ segir hann.
Annar tók í sama streng og sagðist hafa veitt því eftirtekt þegar verið var að sækja konurnar. Sá sagðist hafa gengið fram hjá húsinu og séð inn, þar hafi konur reykt í tómu herbergi.
Nánar er hægt að lesa um málið á Stundinni.