Gjaldeyristekjur vegna komu skemmtiferðaskipa til landsins og þjónustu við þau nema allt að sjö milljörðum króna á ári og fara ört vaxandi. Mikil aukning hefur orðið í hringferðum um landið og eru nú 15 viðkomuhafnir skipanna víðsvegar um landið.
Þetta kom fram í sjónvarpsþættinum Atvinnulífið á Hringbraut í gærkvöld, en þar tók umsjármaðurinn Sigurður K. Kolbeinsson hús á starfsfólki og stjórnendum TVG-Zimsen. Fyrirtækið á sér áralanga sögu sem flutningsmiðlari en á síðari árum hefur félagið sinnt komu skemmtiferðaskipa í síauknum mæli, en sá hluti er rekinn af dótturfélagi þess, Gáru. Að mörgu er að hyggja í þessari starfsemi eins glögglega kemur í þættinum. Þegar skip leggst að bryggju í höfnum landsins fer nefnilega mikið í gang; tæma þarf sorp og fylla á vatn, sem og matvörur, drykki og annan varning sem nota þarf við siglingar milli landa á stórum skipum sem taka frá 1000 farþegum og meira. Að baki liggur þaulskipulagt starf þar sem ekkert má klikka í annars stuttum viðdvölum þessara skipa.
Í þættinum, sem hægt er að nálgast inn á hringbraut.is í heild sinni eða klippum, var rætt við Björn Einarsson framkvæmdastjóra TVG-Zimsen.
Þetta var jafnframt síðasti þátturinn um Atvinnulífið í bili en hann hefst að nýju þann 1. september eftir sumarleyfi, en í millitíðinni verða valdir þættir úr þáttaröðinni frá því fyrr á árinu endursýndir á venjulegum útsendingartíma þáttanna.