Oddný Harðardóttir, fv. fjármálaráðherra, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur fengið svar frá menntamálaráðherra sem staðfestir miklar breytingar á sókn eldri nema í framhaldsskóla eftir breytingu sem Illugi Gunnarsson stóð fyrir.
„Ég var að fá upplýsingar frá menntamálaráðherra um fjölda nemenda í framhaldsskólum. Niðurstaðan er sú að nemendum 25 ára og eldri hefur fækkað samtals um 742. Á bóknámsbrautum hefur þeim fækkað um 447 og á verknámsbrautum um 295. Hvað varð um þetta fólk sem vildi mennta sig en fékk ekki pláss í framhaldsskólunum okkar? Er það á Bifröst eða á Keili? Þurfti það að taka sig og sína upp frá heimabyggð með ærnum tilkostnaði? Finnst fólki þetta bara í lagi? Við eigum framhaldsskólana saman og við eigum ekki að taka það í mál að þar fái fólk ekki skólavist vegna aldurs,“ segir fv. fjármálaráðherra í færslu á facebook.
Fram kemur í umræðum við færsluna að „skemmdarverk“ Illuga skuli ekki liðin.
Mikil úlfúð varð í fyrrasumar þegar ráðherra gerði þá breytingu að eldri nemar verða að leita til einkaframtaksins ef þeir vilja ná stúdentsprófi. Á sama tíma hafa námsgjöld stórhækkað eins og Akureyri vikublað fjallaði um snemma sumars.