Höfuðborgasvæðið er \"of-þjónustað.\" Þar eru allt of margar bensínstöðvar. Nú eru samkeppnisaðilar að greina eldsneytismarkarkaðinn. Ekki bara á höfuðborgarsvæðinu heldur landinu öllu.
Með tíð og tíma merkir þetta fjölgun sjálfsafgreiðslustöðva fyrir endsneyti og stórfækkun hefðbundinni bensínstöðva með víðtæka þjónustu. Það mun orsaka stórfækkun starfsmanna hjá þeim félögum með stöðvar sem selja eldsneyti á bíla.
Innkoma Costco er ekki ástæðan fyrir öllu sem gerist á eldneytismarkaðnum. Costco hefur áhrif; en ekki úrslitaáhrif.
Olíufélögin íslensku taka stefnumótandi ákvarðanir og verða fyrir bragðið léttari á fæti til að koma til móts við þarfir neytendanna.
Morgunblaðið er með frétt um þetta.