Skeljungsmálið: þetta er rannsakað

Fimm einstaklingar eru grunaðir um lögbrot í tengslum við kaup og sölu á hlutum í Skeljungi. Á meðal þeirra eru hjónin Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Þórðarson, sem keyptu 51 prósent hlut í Skeljungi sumarið 2008 af Glitni, restina af félaginu skömmu síðar og áttu síðan í umdeildum viðskiptum með færeyska olíufélagið P/F Magn. Embætti héraðssaksóknara réðst í umfangsmiklar aðgerðir síðastliðinn fimmtudag vegna málsins, sem samkvæmt fréttum RÚV byggir á kæru Íslandsbanka frá árinu 2016.

Samkvæmt heimildum Kjarnans voru hjónin handtekinn á fimmtudag en ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Svanhildur Nanna var stjórnarformaður VÍS, þar sem félag hjónanna er hluthafi. Hún steig niður úr þeirri stöðu síðastliðinn föstudag. 

Nánar á kjarninn.is;

https://kjarninn.is/skyring/2018-06-05-sagan-oll-thetta-er-thad-sem-verid-er-ad-rannsaka-i-skeljungsmalinu/