Skeggið fraus við dettifoss

Sigurður Erlingsson landvörður fór upp að Dettifossi í dag að merkja vetrarleið að fossinum. Hann segir að það hafi verið býsna kalt í vinnunni. Myndin sem tekin var af Sigurði með fossinn í bakgrunni ber það með sér!

\"Ég er samt feginn að hafa haft skeggið í dag, ég held það hafi munað einhverju,\" segir Sigurður í samtali við Hringbraut.

Sigurður segir að frost hafi verið um 15 gráður á þeim tíma sem myndin var tekin. Úði fossins hafi orðið að snjó í kuldanum. Náttúra landsins hafi notið sín vel í froststillunum en á móti hafi komið að veður til myndatöku hafi ekki að öllu leyti verið hagstætt. Fingur án vettlinga hefðu hreinlega frosið.