Fjölþjóðasamningurinn tengist aðgerðáætlun gegn skattaundandrætti og skattsvikum og skattaflótta.
Bendikt Jóhannesson fjármálaráðherra og efnahagsráðherra undirritaði samninginn sem miðar að því að stemma stigu við skattaundandrætti og skattsvikum með misnotkun tvísköttunarsamninga. Yfir eitt hundrað ríki hafa gerst aðilar að samningnum.
Skattaskjól er hugtak sem haft er um þau vé þar sem skattar eru engir eða litlir. Oftar en ekki merkir þetta að þessi vé tryggja stranga bankaleynd. Þau lönd sem vista þessi vé teljast vera skattskjól og laða þau að fjármagn frá öðrum löndum þar sem skattheimta er sérlega þung.
Aflandseyjar eru nýlegt hugtak á íslensku og er haft um þau vé sem eru á eyjum sem á einhvern hátt tengjast stærri þjóðum þar sem veitt er bankaþjónusta fyrir einstaklinga og félög utan eiginlegs starfsvettangs banka.
Panamaskjölin voru gögn sem lekið var á apríl árið 2016. Þetta er einn stærsti gagnaleki sögunnar og hafa Panamaskjölin enn umtalverð áhrif bæði hér á landi og í grannríkjunum.
Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnhagsmálaráðherra á von á skýrslum tveggja starfshópa sem hann skipaði til að vinna tillögur að aðgerðum til úrbóta um umfang fjármagnstilfærslna og eignaumsýslu Íslendinga í skattskjólum og á aflandseyjum.
rtá