Skattsvikamál upp á hundruð milljóna?

  

Vísbendingar eru um að gögn sem skattrannsóknastjóri keypti fyrir 37 milljónir króna í sumar sýni fram á skattsvik sem í stærstu málum nemi hundruðum milljóna króna. Rannsókn á 30 alvarlegustu málunum er að hefjast.

Visir.is greinir frá þess og byggir á viðtali við Bryndísi Kristjánsdóttur skattrannsóknarstjóra.

Fram kemur að endurákvörðun sé  heimil sex ár aftur í tímann afgangur gagnanna sem tengist 400 félögum erlendis  í eigu Íslendinga verði sendur ríkisskattstjóra. Þá kemur fram að greining gagnanna gekk betur en ætlað var.