Benedikt Jóhannsesson fjármálaráðherra sagði i Síðdegisútvarpi á Rás 2 að komið hafi upp dæmi þess að hryðjuverkamenn hafi flutt peninga til Íslands til að þvætta þá.
Í framhaldinu var ráðherrann spurður hvort hann sannarlega vissi um dæmi um þetta. Hann svaraði því til að menn teldu að þetta hefði verið reynt.
Önnur stjórnvöld að því er virðist búa ekki yfir neinum upplýsingum um að erlendir hryðjuverkamenn hafi flutt pening til Íslands til þess að þvætta þá.
Til að mynda hefur ekkert heyrst um þetta mál frá Þjóðaröryggisráði.
Embætti ríkislögreglustjóra býr heldur ekki yfir upplýsingum um málið.
Líkast til mun Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra svara nákvæmar fyrirspurnum um þetta efni ef hann er spurður og skýra frá þeim upplýsingum sem hann hefur undir höndum og önnur stjórnvöld hafa ekki.
rtá