Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins sendir sjálfstæðismönnum tóninn í tilkynningu sem hann sendir frá sér í dag þar sem hann boðar að leggja fram allt að tíu þingmál gegn kennitöluflakki, jafnt frumvörp og tillögur, á næstu mánuðum.
Sjálfstæðismenn með Ragnheiði Elínu Árnadóttur, viðskiptaráðherra í broddi fylkingar hafa lýst yfir miklum efasemdum með áform Karls, sagt þau íþyngja viðskiptalífinu og toirvelda nýsköpun og frumkvæði. Forkólfar ASÍ húðskömmuðu ráðherra við viðbrögðin nýlega og bentu á á móti hvort það væri nýsköpun að setja 29 fyrirtæki á hausinn eins og dæmi væri um þegar kæmi að kennitöluflokkurum.
Karl bregst nú við gagnrýni sjálfstæðismanna, enn sem fyrr þeirra skoðunar að kennitöluflakk sé þjóðarmein: \"Nokkrir þingmenn hafa bent á að kennitöluflakk verði ekki alfarið stöðvað með frumvarpinu sem lagt var fram í síðustu viku. Það er rétt, enda var það hugsað sem fyrst skref í baráttunni gegn þeirri óværu sem kennitöluflakkið er. Það mun gera hinum seku erfiðara fyrir, en þeir munu finna aðrar glufur,\" skrifar Karl í dag.
Hann bætir við: \"Þá hefur verið kvartað undan því að kennitölufrumvarpið sé íþyngjandi. Þannig er fullyrt að hugsanlega munum við missa af næsta Bill Gates á meðal vor, ef menn fá ekki að setja nokkur fyrirtæki á hausinn, með tilheyrandi kostnaði fyrir þjóðfélagið, áður en þeir slá í gegn. Rétt er að benda á og ítreka að frumvarpið gerir einungis ráð fyrir að menn taki pásu eftir tvö gjaldþrot á þremur árum. Kannski geta þeir þá unnið betur að viðskiptaáætlunum sínum.Er það ósanngjörn krafa,\" spyr Karl og er augljóst hver hér á að fá sneiðina.
\"Það er undarleg hugmyndafræði,\" skrifar hann enn \"að líta á kennitöluflakk, tollalagabrot eða skattsvik sem saklausan hlut. Kostnaður þjóðfélagsins nemur allt að 100 milljörðum króna á ári. Ríkið tapar, starfsmenn tapa, birgjar tapa o.sv.frv. Oft leiðir þetta til keðjuverkandi gjaldþrota. Þingmálin 10 eru lögð fram til að koma skikki á þessa hluti. Verða þau íþyngjandi? Já, eflaust mörg þeirra. En umferðarlögin eru líka íþyngjandi, ef menn vilja taka slíka umræðu.\"