Skattgreiðendur borga 3.5 milljarða fyrir göng og veg sem þeir munu aldrei nota

Alls nemur heildarkostnaður ríkisins (skattgreiðenda) vegna kísilversins PCC á Bakka við Húsavík rúmlega 4,2 milljörðum króna. Þar af eru rúmir 3.5 milljarðar vegna jarðganga undir Húsavíkurhöfða ásamt vegtengingum, en sá vegakafli liggur frá höfninni og að iðnaðarsvæði Bakka, vegur sem aðeins starfsmenn fyrirtækisins og starfsseminnar þar munu koma til með að nota.

Framkvæmdin fór því 1,7 milljarði fram úr áætlunum, eða sem nemur 96 prósentum. Bein framlög vegna kísilversins námu 236 milljónum, til handa þjálfunarkostnaði starfsmanna og alls 460 milljónir fóru í lóðaframkvæmdir. Þá fékk hafnarsjóður víkjandi lán upp á 819 milljónir frá ríkissjóði, sem ráðgert er að verði endurgreitt þegar önnur lán hafa verið greidd.

Hinsvegar liggur ekki fyrir hvort „arð­semi hafnarinnar muni duga til að endur­greiða öll lán sem tekin voru vegna stækkunar hennar,“ segir í svari Þórdísar Gylfadóttur, iðnaðarráðherra, við fyrirspurn Birgis Þórarinssonar, Miðflokki.

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2019/02/01/skattgreidendur-borga-3-5-milljarda-fyrir-gong-og-veg-sem-munu-aldrei-nota-1-7-milljarda-framurkeysla/