Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, segist hafa miklar áhyggjur af stöðu WOW air. Hann vonast áfram eftir því að farsæl niðurstaða fáist fyrir ferðaþjónustuna í landinu en segir ekkert réttlæta það að setja skattfé í áhætturekstur. Mbl.is greinir frá.
„Ég hef haft miklar áhyggjur af þessu lengi,“ segir Bjarni í samtali við Mbl.is. „Við höfum fylgst með þessari stöðu í langan tíma og við vonumst áfram eftir því að farsæl niðurstaða fáist fyrir ferðaþjónustuna í landinu. Það er öllum ljóst að miklir hagsmunir eru undir,“ bætir hann við.
Bjarni segist hafa haft áhyggjur af því að það tæki langan tíma að greiða úr fjárhagsvandanum. „Við erum að horfa á flugrekstur frá Íslandi, sem er í blóðugri alþjóðlegri samkeppni, meðal annars við mjög stór alþjóðleg fyrirtæki sem eru sömuleiðis í vanda. Svo markaðsaðstæður eru allar mjög erfiðar, að því er virðist, og samkeppnin gríðarleg.“
Bjarni segir afstöðu stjórnvalda ekki hafa breyst. „Ég hef áður sagt að við sjáum ekki neina réttlætingu í því að setja skattfé inn í þennan áhætturekstur. Það er sú lína sem við höfum haft og það er enn í gildi.“