Hugmyndir Alþýðusambandsins um fjölgun skattþrepa gætu reynst skaðlegar segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram nýjar skattatillögur á næstu dögum.
Alþýðusambandið kynnti í fyrradag óskir sínar um breytingar á tekjuskatti. Sambandið vill að skattþrepum verði fjölgað í fjögur og efsta þrepið verði hátekjuskattur. Þá er hvatt til þess að skattleysismörk verði hækkuð með hækkun persónuafsláttar. Þetta eigi að nýtast fólki með minna en hálfa milljón króna í mánaðartekjur.
„Það sem ég hef kannski helst við tillögurnar að athuga er þær munu leiða til hærri skatta strax og meðaltekjum er náð, sé ég að skilja tillögurnar rétt. Ég er almennt á móti breytingum á skattkerfinu sem auka jaðarskatta,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Það sé unnt að bæta hag lágtekjuhópa með öðrum aðgerðum.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/skattatillogur-gaetu-reynst-skadlegar