Skattaskjólsgögnin á leið til landsins

Skattagögn um fjármuni Íslendinga í erolendum skataskjólum eru nú á leið til landsins, samkvæmt upplýsingum úr fjármálaráðuneytinu og ætti starfsfólks skattrannsóknastjóra að geta byrjað að vinna úr þeim strax eftir helgi.


Framvinda málsins hefur tekið snöggan kipp á síðustu dögum eftir að embætti skattrannsóknastjóra og fjármálaráðuneytið virtust vera bíða hvort eftir næstu ákvörðun annars og var fjármálaráðherra á tímabili sagður draga lappirnar í málinu. Hann kvað hins vegar upp úr með það í byrjun mars að engtin skattsvik væru liðin á sinni vakt og nokkrum vikum síðar, nánar tiltekið í byrjun síðustu viku fékk hann samþykki ríkisstjórnar fyrir að sækja um 37 milljóna króna aukafjárveitingu Alþingis til kaupa á gögnunum.  


Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði við þetta tilefni að sam­komu­lag hafi náðst um kaup­verð á gögn­un­um og að kaup­in gætu jafn­vel gengið í gegn í þess­um mánuði - og er það nú að ganga eftir, samkvæmt ofangreindum upplýsingum.


Skattagögnin sem nú eru á leiðinni - og bætast raunar við önnur sambærileg gögn sem stjórnvöldum hafa nýlega borist frá HSBC-bankanum - varða hundruð Íslendinga og er ljóst að þeirra bíður í flestum tilvikum endurálagning og sekt fyrir að koma fjármunum sínum undan án þess að boirga af þeim skatta og skyldur til samfélagsins. Er talið ljóst að upphæðin sem endurheimtist með þessum hætti hlaupi á milljörðum króna. Enn er hins vegar íljóst hvort og hvernig mönnum verður gerð refsing fyrir mestu undanskotin, en starfshópur starfs­hóp­ur um gerð griðareglna hef­ur skilað til fjár­mála- og efna­hags­ráðherra drög­um að frum­varpi þar sem lagt er til að tíma­bundið verði fallið frá refsimeðferð hjá þeim sem koma fram með tekj­ur eða eign­ir í skatta­skjól­um er­lend­is.