Finnur Árnason, forstjóri Haga segir mikilægt að færa álögur ríkisins á barnaföt niður í lægra skattþrep, svo sem algengt er í þeim löndum sem Íslendingar vilja bera sig saman við.
Þessi orð lét hann falla á ráðstefnu Ímark í gærdag, en þar kom fram að Hagar gerðu nýverið könnun á fatakaupum Íslendinga sem sýnir meðal annars að Íslendingar kaupa hversdagsfatnað í auknum mæli á erlendri grundu; aukningin í þá veru er um 7% á milli ára.
\"Tollar féllu niður af fatnaði um áramót, sem ætti að hafa áhrif á þessa þróun,\" sagði Finnur á fundi Ímarks og kvaðst þar vona að ofangreindri þróun verði snúið við. Það sé þó hans mat að það þurfi að færa fatnað í neðra þrep virðisaukaskattsins svo almennileg viðspyrna náist.
Finnur hefur annars verið áberandi um umræðu um verðlagningu á nauðsynjavöru í vikunni. Hann hefur deilt hart á forystu bænda fyrir að láta að því liggja að verslunun taki til sín full stóran skerf í virðiskeðju íslenskra landbúnaðarvara. Það segir Finnur jafngilda svívirðilegri árás á íslenska verslun, landbúnaðarvörur séu seldar með algerri lágmarksálagningu hér á landi og bændur verði að líta í eigin barm í þessum efnum.