Skattar eru mál málanna

Líklega verður Jonas Gahr Störe leiðtogi jafnaðarmanna næsti forsætisráðherra Noregs.

Hann heitir því að afnema skattalækkanir ríkisstjórnar Ernu Solberg. En þær nema um tuttugu og einum milljarði norskra króna frá því Erna Solberg tók við stjórnartaumunum árið 2013.

Síðustu skoðanakannanir sýna að flokkar í ríkisstjórn Ernu Solberg fengju 81 þingsæti og Verkamannflokkurinn fengi 87 þingsæti. Verð á hráolíu hefur hríðfallið og tekjur ríkissjóðs Noreg því rýrnað umtalsvert. Ekki er því svigrúm til skattalækkana segir Erna Solberg.

Jafnaðarmenn lofa að vinna bug á atvinnuleysi og tryggja að hagvöxtur dragist ekki frekar saman en orðið er.

Ríkisstjórn Ernu Solberg hefur tekið út háar upphæðir af sparireikningi Noregs en inn á þann sjóð eru lagðar inn tekjur af olíulindum og gasbrunnum Noregs.

Noregur er ríkt land. Lífsgæði þar eru mikil. Í landinu er gott verlferðakerfi og miklar tekjur fást af olíu - jarðgasiðnaði.

Mikilvægt umræðuefni í Noregi er um það hvernig fjármagna eigi velferðina þegar olíu þrýtur og jarðgas hverfur.

Þetta eru mál sem ná þó ekki að skyggja á umræðu um fjölgun aðkomufólks í Noreg og um þátt og hlutverk ríkisins í viðskiptalífinu.

 

 

[email protected]