Skattar, efnahagur og kratar

Þáttur Sigurjóns M. Egilssonar á Hringbraut að morgni hvítasunnudags verður eflaust skemmtilegur.

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, mætir og segir frá aldarafmæli alþýðuhreyfingarinnar og Alþýðuflokksins. Saga flokksins erum margt sérstök og hann klofnaði oftar en dæmi eru um aðra flokka í stjórnmálasögu Íslands.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri mætir einnig til Sigurjóns og þeir ræða um skattaskjól, skattskil, svarta atvinnu og fleira upplýsandi.

Þátturinn er á dagskrá kl.10-12 á sunnudagsmorgunn.