Staða Reykjavíkurborgar, stefna meirihlutans, grunnskólarnir og margt annað verður til umfjöllunnar í Þjóðbraut í kvöld. Til umræðunnar mæta, Dagur B. Eggertsson og Áslaug Friðrikssdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Meðan ýmis gjöld eru hækkuð og sköttum er haldið óbreyttum vilja Sjálfstæðismenn umtalsverðar skattalækkanir. Allir borgarfulltrúar eru samt trúlega sammála um að fjárhagsstaða borgarinnar er betri en lengi áður.
Sigurjón M. Egilsson annast þáttinn sem er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 í kvöld.